Enga sanngjarna notkun
|
Commons LEYFIR EKKI „SANNGJARNA NOTKUN“ (e. fair-use). Myndir sem falla undir slíkar undanþágur á ensku eða íslensku Wikipediu eða öðrum verkefnum sem leyfa slíkt efni má aldrei hlaða inn hérna!
|
Upprunaupplýsingar
|
Vinsamlegast leggðu mat á þær upplýsingar sem fylgja myndinni á viðkomandi verkefni. Myndir sem ekki hafa skýrar og trúverðugar upprunaupplýsingar eiga EKKI að koma hingað.
|
Notaðu hæstu upplausn
|
Passaðu uppá það þegar þú færir myndir á milli að þú sért að færa stærstu mögulegu útgáfuna. Ef skráarnafnið byrjar á „300px-“ eða einhverju álíka þá ert þú ekki með bestu upplausnina.
|
Lýsandi heiti
|
Ef upprunalega skráin bara ólýsandi heiti (hvað þá ef það er heitið sem myndavélar gefa myndum sjálfkrafa), þá er þetta gott tækifæri til að bæta úr því. Það minnkar líkur á árekstrum og auðveldar leit.
|
Tengill í uprunalegu útgáfuna
|
Þú skalt ávallt láta tengil í upprunalegu útgáfu myndarinnar fylgja með í lýsingu. Það er nauðsynlegt til þess að það sé gerlegt að staðreyna það að myndin sé sannarlega gefin út undir frjálsu leyfi. Ef þennan tengil vantar gætum við þurft að eyða myndinni af Commons.
|
Bættu við flokkum
|
Vinsamlegast bættu við flokkum á myndina. Flokkar gera efnið mun aðgengilegra og auðvelda öðrum að finna það.
|